send link to app

Íslenski málhljóðamælirinn


4.8 ( 7328 ratings )
Onderwijs Medical
Developer: Raddlist
89.99 USD

Fagðilar sem hyggjast nota ÍM skimunartækið þurfa að ljúka réttindanámskeiði hjá Raddlist með fræðslu og þjálfun í að nota skimunartækið í sínum skóla/starfsstöð.

Íslenski málhljóðamælirinn (ÍM) er íslenskt skimunarpróf sem metur framburð, hljóðkerfisþætti og skiljanleika tals hjá öllum aldurshópum (frá 2 ára aldri).
ÍM gefur strax niðurstöður um stöðu í framburði og upplýsir hvaða málhljóð þarf að þjálfa.
Í lok prófunar verður sjálfkrafa til skýrsla/samantekt um getu barns/einstaklings í að bera fram íslensk málhljóð og fram kemur hvaða málhljóð þarf að þjálfa. Prófandi getur bætt eigin athugasemdum inn í skýrsluna, prentað hana út og/eða sent hana beint áfram til þess sem óskað er með leyfi og skv. vinnslusamningi skóla/stofnunar. ÍM hefur innbyggð aldursviðmið barna á tileinkun íslensku málhljóðanna. Hægt er að velja um aldursbil frá 2 - 6 ára í styttri prófun eða leggja allt skimunarprófið fyrir. Skimun metur hvaða börnum þarf sérstaklega að gefa gaum að vegna framburðar m.t.t. áframhaldandi tilvísunar og inngrips strax eftir skimun.
Tækið er sveigjanlegt eftir sérfræðiþekkingu notanda þ.e. hvort um er að ræða talmeinafræðinga, sérkennara, kennara, þroskaþjálfa eða aðra fagaðila.
Skimun kemur ekki í stað prófunar talmeinafræðings.

ÍM er byltingarkennt skimunartæki sem býður upp á fjölbreytta möguleika en prófstjórnendur verða alltaf að gæta þess að hafa skrifleg leyfi fyrir fyrirlögn og meðhöndla öll gögn samræmi við
vinnslusamning skóla/stofnunar og persónuverndarfulltrúa sveitarfélagsins. ÍM gefur möguleika á að enginn sé nafngreindur í kerfinu; hvorki prófstjórnandi né próftaki/nemandi.
Fylgja skal leiðbeiningum og verklagi hvers sveitarfélags eins og við á.


Slakur framburður og hljóðavitund hefur áhrif á hljóðkerfisvitund. Börn í áhættu fyrir lestrarörðugleikum eru illa skiljanleg í tali strax upp úr 2 ára og 4 mánaða aldri. Þau börn sem ennþá eru illa skiljanleg við 5 ára og 10 mánaða aldur sýna slakari getu en jafnaldrar á íslensku prófi sem metur hljóðkerfisvitund og undirbúningsfærni barna fyrir læsi (HLJÓM - 2). Langtímarannsókn (birt í feb. 2016) sýndi að íslensk börn sem fengu slaka niðurstöðu á HLJÓM- prófinu á síðasta ári í leikskóla stóðu verr á samræmdum prófum í íslensku og stærðfræði í 4., 7. og 10. bekk grunnskóla.
Rannsóknir sýna að flest börn ná ákveðnum málhljóðum á mismunandi aldri. Með ÍM verður hægt að draga úr áhyggjum fagfólks og foreldra og grípa til viðeigandi ráðstafana á réttum tímapunkti í lífi barns. Tvær myndasenur; borgarlíf og skógarlíf auk sjóræningamyndbands gefa möguleika á að meta hversu skiljanlegt barnið er í tali. Þær myndasenur má jafnframt nota til að gera óformlega skimun á málskilningi barnsins. Sjá leiðbeiningar: http://laerumogleikum.is/myndasenur-malhljodamaelir/

- Hægt að skima framburð eftir aldri barns og meta hvort um seinkun er að ræða miðað við jafnaldra
- Tekur 5 – 15 mín með tilbúinni samantekt/skýrslu í lokin
- Athugun á 25 samhljóðum í íslensku í fram-, inn- og bakstöðu orða þar sem hljóðin koma fyrir, auk samhljóðaklasa
- Val um að skima framburð sérhljóða
Upptaka og vistun hljóðgagna - vista þarf gögn í samræmi við verkreglur skóla/stofnunar um Persónuvernd
- Skráning athugasemda við hvert hljóð
- Hægt að snúa mynd með/án texta að þeim sem prófaður er
- Hægt að hlusta á hvernig öll orð eru borin fram
- Hægt að bæta við eigin umsögn í skýrslu
- Greint frá stöðu gagnvart greiðsluþátttöku SÍ í talþjálfun
- Sívistun með möguleika á afritun gagna í samræmi við verkreglur skóla/stofnunar um Persónuvernd
- Fleiri en einn prófstjórnandi getur skráð sig inn með sínu lykilorði og notað mælitækið

Við þökkum eftirtöldum aðilum fyrir stuðning við þróun Íslenska málhljóðamælisins:
Þróunarsjóður námsgagna, Barnavinafélagið Sumargjöf, Uppbyggingarsjóður Suðurnesja, Samfélagssjóður Landsbankans.

Frekari upplýsingar:
laerumogleikum.is